Forsíða

Börn í fyrirrúmi

Á Umhuga.is getur þú nálgast á einum stað upplýsingar um helstu þætti í uppeldi og aðstæðum barna og unglinga sem hafa áhrif á geðheilsu þeirra á uppvaxtarárunum og þá um leið seinna í lífinu.  Þú finnur hér einnig upplýsingar um þunglyndi og kvíða  og upplýsingar um hvert er hægt að leita til að fá aðstoð.

Börn á bekkUpplýsingarnar eru ætlaðar foreldrum og öðrum uppalendum, fagfólki sem vinnur með börnum og unglingum á einn eða annan hátt og ekki síst börnum og unglingum sem vilja fræðast um þessi mál.

Efninu hér á vefnum er ekki ætlað að vera tæmandi. Þeir sem vilja glöggva sig betur geta fundið ítarlegri umfjöllum í heimildalista. Heimildirnar  eru flokkaðar eftir efni og eru fengnar úr vísindaritum. Þær eru ætlaðar jafnt fagfólki og öðrum sem áhuga hafa á dýpri fróðleik um einstök efni. Enn fremur eru hér safn tengla inn á vefsetur annarra stofnana og félaga, innlendra sem erlendra, með gagnlegum upplýsingum.

Auk þessa ítarefnis bjóða aðstandendur verkefnisins upp á fyrirlestra og námskeið fyrir áhugafólk og fagfólk þar sem farið verður nánar út í einstaka efnisþætti, allt eftir séróskum hópa og vinnustaða. Til dæmis geta foreldrafélög og félög aðstandenda barna og unglinga með hegðunarvandamál og/eða geðraskanir beðið um slíka fræðslu. Nánari upplýsingar veitir Salbjörg Bjarnadóttir, verkefnisstjóri hjá Landlæknisembættinu, s. 510 1900, salbjorg@landlaeknir.is.

Umhuga.is er forvarnarverkefni á vegum Þjóðar gegn þunglyndi og samstarfsaðila þess. Þjóð gegn þunglyndi hefur frá stofnun beint spjótum sínum að þunglyndi og  sjálfsvígum fullorðinna, m.a. í samstarfi við European Alliance Against Depression. Nú verður forvarnaraðgerðum beint  að aðstæðum barna og unglinga.

Október 2008

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli