| |
Jákvætt uppeldi
Eðlileg örvun og verðskuldað hrós eru lykilatriði í heilbrigðri mótun sjálfsmyndar barna, rétt eins og matur og drykkur eru nauðsynleg líkamlegum þroska.
Undir efnisflokknum Jákvætt uppeldi er fjallað um hvernig styrkjandi og veikjandi þættir í uppeldinu hafa áhrif á sjálfsmynd barna. Þá er fjallað um hvað ræður því að börn öðlast þolgæði og þrautseigju til að takast á við lífið.
Enn fremur er bent á nauðsyn þess að vera vakandi fyrir velferð barna þegar foreldrar eiga við geðröskun að stríða. Ef börn fá ekki þann stuðning sem þau þarfnast hættir þeim frekar til að flosna upp úr skóla eða þróa með sér kvíða eða þunglyndi.
Október 2008