Stuðlar


 Stuðlar - Meðferðarstöð ríkisins

Stuðlar - Meðferðarstöð fyrir unglinga
Fossaleyni 17 í Grafarvogi

 

Stuðlar – Meðferðarstöð fyrir unglinga


Starfsemi Stuðla er í höfuðatriðum tvíþætt.  Annars vegar fer fram greiningar- og meðferðar-
starf á meðferðardeild. Hins vegar er starfsemi á lokaðri deild, sem felst í gæslu, umönnun og mati á unglingum í miklum vanda.  Þessi vinna er  í samvinnu við barnaverndarnefndir meðan verið er að kanna mál unglinganna og finna fyrir þá leiðir.

Meðferðardeild
Á meðferðardeild eru rými fyrir átta börn í senn. Það er útbreiddur misskilningur að á Stuðlum séu aðallega ungmenni með vímuefnavanda og meðferðin sé fyrst og fremst vímuefnameðferð.

Þau  börn sem koma á Stuðla eiga við margvísleg vandamál að stríða, á heimili, í skóla og í samskiptum. Sum hafa orðið fyrir kynferðislegri misnotkun, einelti, ofbeldi eða verið í útigangi. Sum hafa lagt aðra í einelti, beitt ofbeldi eða framið afbrot. Mörg stríða við þunglyndi og ofvirkni, önnur við kvíðavanda svo sem áfallastreitu. Auk þess hefur hluti unglinganna misnotað vímuefni. Hvert barn á að jafnaði við fjölþættan vanda að stríða. 

Á meðferðardeildinni er stuðst við reglubundna dagskrá og atferlismótandi þrepa- og stigakerfi. Að öðru leyti er meðferðin löguð að þörfum hvers og eins. Unnið er sérstaklega með vímuefnaneyslu og ef um afbrotaferil er að ræða hjá unglingi er unnið með hann.

Greining og meðferð haldast í hendur í einstaklings- og fjölskylduviðtölum, sálfræðiathugunum og úrvinnslu upplýsinga frá meðferðaraðilum og skóla. Skoðaðar eru aðferðir barns í samskiptum, líðan og viðhorf þess til eigin stöðu sem og bjargráð í fjölskyldu. Lögð er áhersla á þátttöku foreldra í meðferðinni.

Í meðferðinni er reynt að auka félagsfærni, sjálfstjórn og hæfni til að nýta eigin styrkleika. Daglega er farið í útivist, tómstundir eða íþróttir. Skólanám er á vegum Brúarskóla og fer fram á Stuðlum. Á sumrin er starfræktur vinnuskóli.  Á síðasta ári var tekin upp ART þjálfun (Aggression Replacement Training) á Stuðlum.  Þetta er þjálfun í félagslegum samskiptum, reiðistjórnun og unnið er með siðferðilegan vanda úr daglegu lífi unglinga.

Lokuð deild (Neyðarvistun)
Barnaverndarnefndir geta vistað ungling á lokaðri deild vegna alvarlegra hegðunarerfiðleika, óupplýstra afbrota, ofbeldis eða stjórnleysis vegna neyslu. Markmiðið er að stöðva skaðlega hegðun og að starfsfólk barnaverndarnefnda hafi svigrúm til að greiða úr málum.

Starfsmenn lokaðrar deildar aðstoða vistunaraðila og foreldra við að meta stöðuna. Deildin er ekki greiningar- eða meðferðarúrræði, heldur staður til að gæta unglings í stuttan tíma.  Leitast er við að auka jafnvægi hans með því að veita honum húsaskjól, fæði, afþreyingu og samneyti við fullorðna.  Hámarksvistun á deildinni eru 14 dagar.

September 2008

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli